Klukkan

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Notar þú bílbelti?

Leit

vaff vaff vaff punktur Einn tveir þrír punktur is skástrik ryksuga

16. nóvember 2006 klukkan 20:57
www.123.is/ryksuga Ég er flutt hingað yfir, er að prófa þetta =) Sé til hvað ég geri svo í framtíðinni.. Endilega kíkið, commentið og munið eftir gestabókinni!
Ásgerður Friðbjarnardóttir
Engin athugasemd

Endalaust fyndið

14. nóvember 2006 klukkan 01:08

what is yellow and feeds of dead beatles?
Answer: ~Yogo uno~ Brosandi
-Annars þá er veðrið alveg klikkað leiðinlegt hérna,og ég er als ekki að fíla það,það á að fara versnandi í kvöld og í nótt, vonum bara að það kyngi svo miklum snjó niður að ég komist ekki í skólann,er ekki að nenna að vera lengur í skólanum, komin með svo mikinn námsleiða Óákveðinn Sem ég tel vera nú frekar slæmt,þar sem að ég á nú eina önn eftir,en annars kenni ég sjálfri mér bara um þennan námsleiða,ég geri mér hann sjálf, plús það ég er bara komin með leið á skólanum hér, námsefninu og hvað þá kennurunum. Finnst sumt starfsfólkið bara orðið lúið; t.d. Gósý kellingin. Það er enginn vinnufriður fyrir henni,þar sem að hún gjammar allan tímann, við eigum að vinna í ritgerðum en það er ekki hægt vegna blaðurs í henni Öskrandi Þess vegna kýs ég að gera hana hér heima. Segjum þetta gott í bili, og ekki kvarta um bloggleysi hérna stelpan er sko að standa sig hér Ullandi

Ásgerður Friðbjarnardóttir
Engin athugasemd

Lok lok og læs og allt í stáli!

12. nóvember 2006 klukkan 20:34


Svona er heimreiðin heima hjá mér, og bíllinn er fastur,ég kemst hvergi! Endar með því að ég fæ björgunarsveitarmenn til þess að aðstoða mig því vegagerðin er í helgafríi og því verður ekki mokað fyrr en á morgun Öskrandi


Svona er allt hvítt og fagurt, vantar bara jólaljósin!
- En nóg um Þetta, vildi bara sýna fólki hvernig Heiðardalurinn fagri er hehhe

Ásgerður Friðbjarnardóttir
2 athugasemdir

Nýtt útlit

11. nóvember 2006 klukkan 22:56

Þá er ég heldur betur búin að láta nýtt útlit á þessa síðu. Mér líst bara ágætlega á hana,er ekki sátt með hvað myndirnar hér fyrir ofan verða alltaf stórar, taka hálft bloggið! Ætlaði að hafa mynd af ryksugunni sjálfri þarna,en það tók bara hálfa síðuna,svo þetta fallega blóm fær að njóta sín þarna.
Hvernig finnst þér nýja útlitið?
En annars þá var síðan mín ekki bara að fá eitthvað nýtt, heldur var verið að skíra tvö lítil börn í dag. Harpa og Gauti voru að skíra dóttur sína og fékk hún fallega nafnið Berglind Sara, síðan var Esther mín að skíra fallegasta prinsinn og heitir hann Guðmundur Hrannar, ekkert smá fallegt líka. Það er allt svo fallegt í dag... heh
- En annars, hef ég eytt mest megni af deginum í það að breyta útlitinu hér, ætti að vera að vinna í ritgerðunum mínum fjórum,en ég læt það sitja á hakanum,nenni því ekki.Tók minn lærdómsskammt út vikuna,og vil fá einn dag frí,takk fyrir pent. Ekki veit ég hvað skal eyða kvöldinu í kvöld í,þar sem að ég veit ekki hvort að bíllinn minn drífi út götu, vegna snjós. Öskrandi
- Ég mætti í gær í skólan í pilsi og kínaskónum mínum,því það var allt autt úti,enginn snjór bara lemjandi rigning. Þegar ég kom út úr skólanum kl tvö,þá var bara allt orðið hvítt og komið rok.. í gærkvöldi snjóaði svo hressilega og vindurinn lamdi í rúðurnar eins og hann fengi borgað fyrir,svo ég eyddi kvöldinu í að dúlla mér heima á náttfötunum..

Ásgerður Friðbjarnardóttir
3 athugasemdir

Bloggdrasl

10. nóvember 2006 klukkan 05:11

Þetta er á bloggum allra landsmanna í dag,og er víst svaka vinsælt. Ætli maður fylgi ekki fólkinu og skelli þessu inn,ef þú hefur áhuga á að svara þá endilega spreyttu þig,ef ekki haltu þig þá fyrir utan!

1. miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

 4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Dirty or Clean:

 8. Tattoo eða göt:

 9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

 11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

 17. Getum við hist og bakað köku?

 18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

 19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

 21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?

 22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

 24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?

27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Ásgerður Friðbjarnardóttir
7 athugasemdir

Blogg er heimtað...

09. nóvember 2006 klukkan 02:39

...svo ég skal blogga!
- Jámm,ég hef verið á fulla það sem búið er af þessari viku. Á mánudaginn kvaddi elskuleg vinkona mín vestfjörðinn sinn og hélt heim á leið norður á Akureyri. En hún kom við samt á smíðaverkstæði Friðbjörns hér á mánudagsmorgninum,því fólkið á bensínstöðinni gat ekki skipt um rúðuþurrku fyrir hana þar,kom hún hingað til þess að fá tæki og tól. Það var pússað, klippt,lamið, bíllinn rispaður, pússað og pússað blessað járnið,þangað til að rúðuþurrkan komst á og svo var bara teypað og rúðuþurrkunni startað! flott verk hjá stúlkunni hún hélst Brosandi En ætli hún hafi haldist alla leið norður ? Því verður Habba að svara hér í commenti Glottandi  Ég er með alversta hósta eins og er og asminn bætist þar inn í og gerir illt verra, eitt er svo fyndið,þegar ég þegi fæ ég svoleiðis brjálæðis hóstaköst að ég nánast ræð ekki við hálsinn á mér,en ef ég tala þá hósta ég sem minnst. Þannig að þegar ég er í prófum í skólanum(búin með 3 þessa vikuna) þá missi ég mig alveg og hósta eins og mother f***er, svo þegar ég kem úr prófunum og fer að tjá mig hætti ég þessu hóstirugli, fyndið. þannig best er að vera bara sönglandi. Í rækjunni í gær, byrjaði ég eimitt að hósta,því allir þegja þar,svo ég fór að söngla, og viti menn ég sönglaði "í bljúgri bæn" allan tímann, frá 15:40-19:30! haha, voanandi fór fólk ekki að fá ógeð ef mér, en þetta lag var bara fast í hausnum á mér,svo ég réð ekkert við þetta.

-En ég ætla að skella mér í bað, og lesa "Dóra í dag" bók sem ég er að fara að greina í Ísl 633!


Ásgerður Friðbjarnardóttir
3 athugasemdir

~Erótískurdagur~

03. nóvember 2006 klukkan 23:40

Erótískurdagur var þemað á deginum í dag og sá seinasti í þessum leynivinaleik. Mér persónulega fannst við Eva standa okkur vel í leiknum þótt við gáfum ekki á rómantík/ástardeginum gjöf,vegna mikilla anna í skóla og vinnu,en létum þó krakkana vita í sms-um og bættum þeim upp daginn eftir. En aftur á móti fenguð við tvær gjafir, sem voru já frekar ógeðslegar.. en svona eru víst sumir, vita ekki hvar mörkin eru hehh..
Í dag hitti ég Höbbuna mína, loksins lét skutlan sjá sig hér á vestfjörðum! Við fórum á Thai Koon með Evu, Karen og svo kom Þóra. Eftir að við vorum búnar að borða og sitja og blaðra skutlaði ég Evu upp á leiksskóla í vinnuna og við stelpurnar rúntuðum bara hellings lengi, og talað um gjörsamlega ALLT! Brosandi Skruppum í "mjólkurbúðina" og ég keypti mér sitthvað lítið þar, og borgaði með mínu korti, ég var að raða í pokann og sagði svo "hey hrafnhildur nenniru að skrifa á miðann" og þá fór afgreiðslukallinn (pabbi herberts) að skipta sér af og sagði að það væri bannað að annar skrifi undir kort og fór bara að ibba sig eins og hann er vanur að gera daglega, svo ég labbaði bara út og lét hann um það að röfla út í loftið, ekki nennti ég að hlusta á kallinn. Eftir þetta tókum við nokkra hringi og fórum svo allar hver í sína átt.. sem sagt heim til okkar Ullandi
Helgafrí í skólanum og það ætla ég að hafa sem slökun,þar sem að ég er að fara í fimm hlutapróf í næstu viku Öskrandi sögu, náttúrufræði, félagsfræði, frönsku og enskupróf.. þetta verður strembið, EN ætti að reddastBrosandi
Kvöldið í kvöld verður afslappandi líklegast, skrepp líklegast inn í sigurðarbúð, að fylgjast með leynivinadæminu, allir fá að vita hverjir sýnir voru,þótt ég viti hverjar mínar voru, þá kíkir maður kannski með karen og eygló á þetta. En sé svo til hvað ég geri á eftir..

Laugardagurinn er bara bókaður hjá minni, ætla að sofa til tvö þrjú eða sofa bara þangað til að ég vakna, síðan ætlar Habba mín að hringja og við ætlum að hittast og bóna bílinn hennar, nóta bene ég bónaði minn bíl í gær! EIN ótrúlega dugleg.. En eftir að við höfum bónað og gert höbbu bíl flottan verður skellt sér í kvöldverð til Karen og síðan sötrað á bjórum á meðan, kannski verður kíkt á krúsina eða langa eftir það hvur veit.. sjáum bara til.. en svona er gróft planið hjá mér með helgina, og er að hugsa um að leggja mig örlítið núna, vegna svefnleysis undanfarnar nætur Óákveðinn

Ásgerður Friðbjarnardóttir
3 athugasemdir

Hrekkjulómadagur

02. nóvember 2006 klukkan 22:32

Þemað í dag var hrekkjulómadagur.. Við Eva fengum skúffuköku,sem var skreytt með svakalegu rauðu kökuskrauti og suðusúkkulaði,málið er bara það að við treystum ekki okkar stelpum sem að gefa okkur gjöf,miðað við fyrstu gjöfina, og lögðum ekki í það að borða hana svo hún endaði í ruslinu.. Glottandi Þær tvær eru svo barnalegar að ég gæti alveg trúað þeim til að hafa troðið einhverjum viðbjóði í kökuna, jafnvel skorið hana í tvennt og sett einhverjar pöddur eða einhvern viðbjóð í.. svo sorrý girls!
- Á morgun er þvílíkt spennandi þema, og að sjálfsögðu vaknar perrahlutinn í mínum heila, og okkar gjöf verður jafnvel snilld, ef hún verður eins og er í hausnum á mér, wraww!


Ásgerður Friðbjarnardóttir
Engin athugasemd

Rómantík og ást

02. nóvember 2006 klukkan 04:57
Þetta var þemað í dag, en nenni ekki að blogga meira
Góða nótt
Ásgerður Friðbjarnardóttir
Engin athugasemd

~Sælkeradagur~

01. nóvember 2006 klukkan 06:40

Leynivinaleikur er hafinn í menntaskólanum, og er það alltaf voða spennandi. Gaman að gefa spennandi gjafir, og sjá síðan svipinn á þeim sem að maður gefur,þótt þau viti ekki að það er ég sem að gaf hana, og einnig gaman að fá óvæntar gjafir. En þemað á deginum í dag var "Sælkeradagur" Við Eva gáfum okkar leynivinum voða flotta gjöf, vil ekki segja hvað,því þau gætu hugsanlega lesið bloggið mitt. En við fengum nú ekki beint eitthvað sem tengist "sælkeradegi" heldur frekar "ógeðisdegi" Við fengum; Túnfisk,sælgæti,sleikjó,kindahjörtu and just name it, blandað saman í plastbox úr samkaup" mjög vel hugsað til okkar þessir "vinir" okkar..
Ég ætla að blogga eftir hvern dag, og segja hvað við fengum og hvaða þema er og svoleiðis stuff.. annars er 1.nóv að koma á morgun,sem sagt útborgunardagur, jibbý, og viti menn próftaflan er EKKI komin upp! bömmer...

Ásgerður Friðbjarnardóttir
1 athugasemd